(no subject)

Feb 09, 2008 13:59

Sælir vinir!

Ég var að byrja í 40 tilgangsríku átaki, verð bara að fá að deila þessu með ykkur því þetta er að hafa mikil áhrif á mig.

Salt, kristið samfélag, stendur fyrir þessu, við lesum í bókinni, hittumst 10 saman á miðvikudagskvöldum og svo hittast allir 16 hóparnir á sunnudagssamveru seinni partinn. Byrjuðum á sunnudaginn með heimsókn frá Gospelkórnum, mjög yndislegt. Þessir 40 dagar eru sem sé um 6 vikur, eftir það hittumst við eins og áður, í smáhópum og á samverum.

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um þessar kenningar um tilgang þinn í lífinu láttu mig vita, ef það eru einhverjar spurning láttu mgi þá vita, ef þú vilt koma í smáhópinn þá er alltaf pláss (ekki vegna þess að við séu eitthvað fá heldur erum við alltaf til í að fjölga hópum ef það bætast margir við, sem er nákvæmlega það sem er að gerast um þessar mundir!)
Previous post Next post
Up